Varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, sagði af sér í gær vegna rannsóknar á ástæðum þess að skotfærapöntun gerð árið 2024 ætluð Úkraínu barst aldrei þangað.Hanno Pevkur hefur verið varnarmálaráðherra Eistlands síðan 2022.EPA / Anders WiklundEistar höfðu pantað og greitt fyrir skotfæri að verðmæti sjötíu milljónir evra gegnum indverskt fyrirtæki sem hafði engan bakgrunn í slíkum viðskiptum.Ríkisendurskoðandi komst að þessu misræmi og ríkissaksóknari hóf í kjölfarið sakamálarannsókn gegn yfirmönnum ráðuneytisins. Pevkur segist í færslu á Facebook engan beinan þátt hafa átt í viðskiptunum en sem ráðherra axli hann sína ábyrgð með afsögn.