Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni

Yfirvöld í Noregi hafa í öryggisskyni ákveðið að birta ekki lista yfir þá erlendu ráðamenn sem viðstaddir verða útför Haraldar V konungs á miðvikudaginn kemur.Nettavisen hefur eftir utanríkisráðuneytinu að öllum löndum sem eiga sendifulltrúa í Noregi sé boðið að senda gest til athafnarinnar og að það sé hverju þeirra í sjálfvald sett að upplýsa hvaða ráðamenn verði viðstaddir.Boðið nær einnig til ríkja innan Atlantshafsbandalagsins, EES og Evrópusambandsins þótt þau eigi ekki sendimenn í Noregi, að sögn Cecilie Skjennald, fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins.Hún segir viðbúið að mikill fjöldi þjóðarleiðtoga verði í landinu um miðja næstu viku. Hins vegar nái boðið aðeins til sendifulltrúa Rússlands, Súdan, Mjanmar og Afganistan en ekki sjálfra leiðtoga ríkjanna.Jafnframt ákveður hirðin sjálf hv
Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd