Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi

Úkraínsk stjórnvöld hafa farið þess á leit við Alþjóðaflugmálastofnunina að hún banni almenna flugumferð aðildarríkja hennar um rússneska lofthelgi.Þota rússneska flugfélagsins Aeroflot tekur á loft frá flugvelli við Moskvu.EPA / MAXIM SHIPENKOVÞetta kemur fram í erindi til stofnunarinnar sem Reuters-fréttaveitan kveðst hafa undir höndum. Í gær tilkynntu Úkraínumenn stofnuninni að þeir teldu lofthelgina ekki lengur örugga vegna sívaxandi hernaðarátaka. Hætta geti verið á að farþegaflugvélar verði fyrir eldflaugum eða drónum sem Rússar og Úkraínumenn skjóta hvor að öðrum nánast á hverjum einasta degi.
Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd