Rússneskt skip, Professor Molchanov, sem grunur leikur á að hafi verið notað við áróðursstarfsemi og skipulagningu fjölþáttaógna var í gær kyrrsett við rússneska kolanámubæinn Barentsburg á Svalbarða.Skipið hefur undanfarin ár verið notað við leit að steinefnum undir hafsbotninum við Svalbarða. Það var gert að kröfu úkraínska ríkisorkufyrirtækisins Naftogaz.Lars Fause, norski sýslumaðurinn á Svalbarða, segir kyrrsetninguna gerða í kjölfar úrskurðar héraðsdóms Norður-Troms og Senja, og ætlað að tryggja að Rússar standi við útistandandi skuldbindingar sínar gagnvart félaginu.Þeim beri að greiða bætur fyrir yfirtöku eigna þess við innlimun Krímskaga árið 2014. Alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Rússum að greiða Naftogaz 4,22 milljarða bandaríkjadala í bætur, vexti og lögfræðikostnað. GRUNUR