Grunnskólanemum í New York-borg bannað að nota gervigreind

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, tilkynnti í dag að nemendum í grunnskólum borgarinnar væri bannað að nota gervigreind. Bannið nær til nemenda upp í áttunda bekk, eða þar til þeir hefja göngu í framhaldsskóla. Bannið verður í gildi skólaárið 2026-2027.Bannið nær til tæplega 600 þúsund nemenda í opinberum skólum í New York-borg. Skólaráð borgarinnar er það langstærsta í landinu.Nemendur í framhaldsskólum, sem eru almennt 14 ára og eldri, mega hins vegar taka þátt í afmörkuðum tilraunaverkefnum þar sem gervigreind er notuð. Þeim verður einnig boðið upp á námskeið í gervigreindarlæsi tvisvar á ári.Svokölluð fylgispjallmenni (e. companion chatbots), sem eru sérstaklega hönnuð til að veita notendum tilfinningalegan stuðning, verða bönnuð á öllum skólastigum. BÖRN ÞURFI AÐ TAKAST Á VIÐ K
Grunnskólanemum í New York-borg bannað að nota gervigreind

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd