Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ánægður með að Harry Bretaprins og Meghan Markle hafi yfirgefið Bandaríkin og flutt til Bretlands. Hann segir einnig að hefði hann verið hluti af bresku konungsfjölskyldunni hefði hann ekki tekið við þeim aftur.„Ég er ánægður með það. Ég var ekki aðdáandi,“ sagði Trump við blaðamenn á forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu í kvöld.Harry og Meghan fluttu aftur til Bretlands í síðustu viku. Hjónin höfðu búið í Montecito í Kaliforníu frá árinu 2020 og sögðu þá skilið við konungleg störf, en eru nú sögð ætla að dvelja í Bretlandi um lengri tíma. SEGIR ÞAU HAFA SÝNT KONUNGSFJÖLSKYLDUNNI VANVIRÐINGU Trump sagðist ekki hafa verið hrifinn af framkomu hjónanna eftir að þau sögðu skilið við konunglegar skyldur og fluttu til Bandaríkjanna.„Mér líkaði það ekki. Mé