Ekki er beinlínis sjálfgefið að heilsan leyfi fólki að fagna 70 ára gömlum Íslandsmeistaratitli í flokki fullorðinna með pomp og prakt. Á dögunum gátu þó þrír úr Íslandsmeistaraliði Vals í knattspyrnu frá 1956 gengið út á Valsvöllinn á Hlíðarenda og tekið við viðurkenningum frá Val.