Hinn dæmdi breski barnaníðingur og poppsöngvari Gary Glitter, eða Paul Gadd eins og hann heitir, hefur á ný verið ákærður fyrir kynferðisbrot úr fortíðinni. Nú fyrir að misnota unga stúlku á árunum 1978 til 1981.Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.