Danska leyniþjónustan segir Rússa skipuleggja skemmdarverk

Dönsk stjórnvöld greindu í kvöld frá því að Rússar hefðu lagt á ráðin um að vinna skemmdarverk sem beinast gegn dönskum fyrirtækjum. Meðal skotmarka Rússa eru fyrirtæki í varnariðnaði sem veita Úkraínu hernaðaraðstoð. Það segir Emil Græsholm, yfirmaður gagnnjósna hjá dönsku leyniþjónustunni, PET, í samtali við Berlingske.„Þetta er ekki aðeins viðvörun um að svona nokkuð geti gerst í Danmörku einn daginn. Við sjáum að undirbúningur er hafinn. Af alvöru,“ segir Græsholm. Það er óalgengt að starfsmenn PET veiti fjölmiðlum viðtöl. Græsholm segir að í ljósi alvarleikans telji PET það nauðsynlegt að greina frá þessari ógn því hana þurfi að taka alvarlega.Í svari leyniþjónustunnar við fyrirspurn danska ríkisútvarpsins, DR, segir að Rússar hafi reynt að ráða Dani til þess að sinna njósnum. Það haf
Danska leyniþjónustan segir Rússa skipuleggja skemmdarverk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd