„Ég lærði það eina ferðina enn að með því að opna kirkjurnar og veita fólki vettvang og farveg fyrir sorg sína á þennan hátt er óumræðilega dýrmætt,“ segir Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur við Háteigskirkju, eftir minningarstund sem haldin var í kirkjunni í kvöld vegna fráfalls Benjamíns Guðmundssonar, sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi.