Á 150 metra dýpi á hafsbotninum úti fyrir Vestur-Noregi liggur þýski kafbáturinn U-864, einn margra minnisvarða þar í landi um síðari heimsstyrjöldina. Breski kafbáturinn HMS Venturer sökkti honum árið 1945 með 67 tonn af kvikasilfri innanborðs. Nú eru kvikasilfursflöskurnar teknar að leka.