Unglingadrykkja er að aukast, segir Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. Það megi sjá í gögnum en þar að auki hafi starfsfólk sem starfar með börnum varað við þróuninni á undanförnum árum. „Þannig að við erum tvímælalaust að sjá aukningu.“Dæmi eru um að ólögráða ungmenni geti keypt og sótt áfengi hjá netverslunum án þess að vera spurð um skilríki.Fréttastofa ræddi við móður 17 ára drengs sem segir að sonur hennar og vinir nýti netverslanir óspart. Ungmennin hafi fengið tvítugan strák til að stofna aðgang hjá Smáríkinu. Þau nýti sér svo aðganginn til að kaupa áfengi og greiða fyrir með sínum greiðslukortum. Þegar konan skoðaði kortafærslur sonar síns sá hún að kortið hefði verið notað 18 sinnum á tveggja mánaða tímabili til að greiða fyrir áfengi á netinu, fyrir nærri 15