Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að ný vatnsleiðsla til Vestmannaeyja hafi ekki enn verið prófuð. Leiðslan skemmdist í byrjun ágúst og enn ekki ljóst hvort hún er nothæf. Íris segir skýrt hver ber ábyrgð á tjóninu.Lögnin er ekki ætluð til að leiða vatn í Vestmannaeyjabæ heldur að vera til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina. Vestmannaeyjabær bíður enn eftir lokaskýrslu um tjónið en Íris segir alveg óumdeilt að leiðslan hafi skemmst við útlagningu og því skýrt hvar ábyrgðin liggi. > Hún skemmist í útlagningu hjá Subsea 7 þannig að það er ekkert vafamál hvar lögnin skemmist og hvenær. Hún skemmdist ekki um borð í skipinu eins og voru einhverjar fréttir um. Hún skemmist þegar verið er að leggja hana út en við höfum ekki fengið lokaskýrsluna um nákvæmlega hv