Rúmlega helmingur flugmanna Icelandair, eða 56%, segist hafa sofnað óviljandi við störf um borð á síðustu þremur mánuðum. Þriðjungur þeirra sem tóku þátt í þreytukönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir það hafa gerst oftar en einu sinni.