Ákvörðun Þjóðverja að segja Rússa bera ábyrgð á drónaárásum í Leipzig í Þýskalandi markar viss tímamót, að mati Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings. Með þessu ýti Evrópuþjóðir til baka af veikum mætti og bregðist við því sem kallað hafi verið ósvífin skemmdaverkaherferð Rússa í Evrópu.Jón Ólafsson segir umræðu og viðbrögð í Rússlandi fylgja þekktu mynstri. Því sé hafnað að Rússar beri nokkra ábyrgð á árásunum og því haldið fram að sönnunargögnum hafi verið komið fyrir. Hann er ósammála þeim sem telja hrikta í stoðum í Rússlandi, jafnvel þótt drónaárásir Úkraínumanna og efnahagsþvinganir hafi áhrif. Engin merki séu um að Vladímír Pútín og valdaklíka hans séu á útleið.Þjóðverjar segja Rússa bera ábyrgð á sprengjudrónaárásum á flugvellinum í Leipzig. Hernaðarsagnfræðingur og sérfræðingu