Tilraun Rússa til drónaárása í Þýskalandi í síðasta mánuði eru hryðjuverk, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hún sat fund utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja á Írlandi í dag.„Það var nefnt á fundinum að það á bara að kalla þessar ógnir því sem þær heita, sem er bara hryðjuverk. Það er horft á það þannig í Evrópu. Samstaða Evrópuríkjanna allra, líka þeirra sem eru utan Evrópusambandsins, sem og Kanada var eindregin, bæði með Þjóðverjum og Úkraínu.“Þetta er óformlegur fundur sem er haldinn tvisvar á ári. Auk utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja sækja fundinn utanríkisráðherrar Kanada, Bretlands og EFTA-ríkjanna, Sviss, Noregs og Íslands. Þar var einnig Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.Þorgerður segir málefni Úkraínu og samstöðu Evrópuríkja með Úkraínu hafa verið efst á blaði á