Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ er kominn í leyfi og hefur tilkynnt um starfslok. Hún segir stjórn félagasamtakanna bera ábyrgð á ástandinu sem upp er komið, en forstjóri samtakanna og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík sögðu báðar upp störfum í síðasta mánuði.Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir stjórn SÁÁ hafa afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna, sem sé óviðunandi. Hún treysti sér ekki til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum utanaðkomandi forstjóra.Valgerður segir starfslok Ragnheiðar Huldu Friðriksdóttur forstjóra hafa verið í óþökk allra nema stjórnarinnar. SÁÁ tilkynnti um starfslok Ragnheiðar í byrjun ágúst og auglýsti starfið laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út á morgun.Valgerður segir að með ráðningu nýs utana