56% flugmanna Icelandair hafa sofnað við störf

Rúmlega helmingur flugmanna Icelandair sem tóku þátt í þreytukönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna segist hafa sofnað óviljandi við störf um borð á þriggja mánaða tímabili í sumar. Könnunin var lögð fyrir alla flugmenn Icelandair í fyrri hluta ágúst. Alls svöruðu 508 flugmenn, eða tæplega 80% félagsmanna. Þar voru þeir spurðir um reynslu sína undanfarna þrjá mánuði. Niðurstöðurnar eru merktar trúnaðarmál en fréttastofa hefur þær undir höndum. Af þeim sem svöruðu sögðust 286, eða 56%, hafa upplifað óviljandi svefn, þar á meðal örsvefn, við störf um borð. Þriðjungur allra svarenda sagði það hafa gerst oftar en einu sinni.  90% TELJA VINNUÁLAG HAFA NEIKVÆÐ ÁHRIF Á FLUGÖRYGGI Níu af hverjum tíu svarendum töldu vinnuálag og vaktafyrirkomulag ósjálfbært með tilliti til þreytu. Sama hlutfal
56% flugmanna Icelandair hafa sofnað við störf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd