Gleðin var við völd þegar fyrsta skóflustungan að nýjum náms- og stúdentagörðum var tekin á Akureyri í dag. Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri, Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri, Aðalbjörn Jóhannsson formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA) og Böðvar Ingi Guðjónsson nýnemi í sálfræðideild HA tóku skóflustunguna.Þrjú fjögurra til fimm hæða fjölbýlishús rísa við háskólann með 126 íbúðum og einstaklingsherbergjum fyrir allt að 170 íbúa.„Það hefur verið mikil þörf fyrir á síðustu árum. Þetta eru þrjár byggingar við Norðurslóð. Heildarstærðin er um 6700 fermetrar. Þetta eru 62 litlar íbúðir, sem sagt stúdíó- og tveggja herbergja íbúðir, og 64 einstaklingsherbergi,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmastjóri Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri. LOKSINS TÆK