Formaður fjölmiðlanefndar vinnur fyrir stærsta hluthafann í Sýn

Einar Hug Bjarnason lögmaður rekur skaðabótamál núverandi stærsta hluthafa Sýnar gegn fyrrverandi stærsta hluthafa fyrirtækisins. Auk þess að gegna lögmannsstörfum er hann stjórnarformaður fjölmiðlanefndar. Í því hlutverki tekur hann þátt í að kveða upp ákvarðanir í málefnum fjölmiðla þegar nefndinni berast erindi eða kvartanir vegna starfsemi þeirra.Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Gavia Invest hefði stefnt Heiðari Guðjónssyni og eignarhaldsfélaginu Úrsusi vegna kaupa þeirra fyrrnefndu á hlutafé í Sýn fyrir 2,2 milljarða króna. Þar var greint frá því að eigendur Gavia teldu Heiðar hafa haldið eftir upplýsingum um stöðu Sýnar við söluna og jafnframt að Einar Hugi væri lögmaður þeirra.Gavia Invest er stærsti hluthafinn í Sýn með 18,23% hlut samkvæmt yfirliti á vef Sýnar. Sjötti stær
Formaður fjölmiðlanefndar vinnur fyrir stærsta hluthafann í Sýn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd