Bláa lónið hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026. Samhliða hlaut Alfreð Gíslason handboltaþjálfari heiðursviðurkenningu fyrir mikilvægt framlag á alþjóðavettvangi. Verðlaunin voru veitt á Bessastöðum í dag.Þetta er í 38. sinn sem verðlaunin eru veitt. Þeim er ætlað að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í alþjóðlegri sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Icelandair, Íslensk erfðagreining, Truenorth og Kerecis. Embla Medical hlaut verðlaunin í fyrra. FENGU VERÐLAUNIN 2004 Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að Bláa lónið hljóti verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur við uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis, verðmætasköpun og þróun starfsemi á sviði ferðaþjónus