Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst. Hann taldi að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að áhrif hárra vaxta væru farin að koma skýrt fram í hagkerfinu.