Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í Salahverfi í síðasta mánuði hefur verið framlengt á grundvelli almannahagsmuna. Lögregla bíður gagna frá rannsóknarstofu lögreglunnar, meðal annars úr lífsýnarannsókn.Maðurinn sem lést var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns Flokks fólksins og formanns atvinnuveganefndar Alþingis. Eldri sonur þeirra hjóna er sá sem er í haldi lögreglu og er grunaður um aðild að andláti föður síns.Lilja Rafney greindi sjálf frá andláti eiginmannsins skömmu eftir að hann lést og sagði hann hafa glímt við veikindi síðustu árin eftir hjartaáfall og heilablóðfall.Sonurinn er öryrki og hefur glímt við andleg veikindi lengi. Lilja Rafney sagði fréttastofu í ágúst að stundum hefði gengið vel og stundum ekki. GRUNUR UM MANND