Tillaga tvegga íslenskra þingmanna og eins grænslensks um stuðning baráttu samtaka hinsegin fólks mætti andstöðu frá Færeyingum á ársfundi Vestnorræna ráðsins. Fundurinn fer fram í Hofi á Akureyri um þessar mundir.Vestnorræna ráðið er samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja. Jón Gnarr er formaður Íslandsdeildar ráðsins.Markmið ráðsins er að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda. Ráðið hefur ályktað um ýmis mál, þar á meðal umhverfis- og auðlindamál, aukið menningarsamstarf landanna og skóla- og íþróttasamvinnu. Í ráðinu sitja 18 þingmenn, sex frá hverju landi.Jón Gnarr og Ása Berglind Hjálmarsdóttir fluttu tillögu á ársfundinum ásamt Pipaluk Lynge frá Grænlandi. Tillagan sneri að því að hvetja stjórnvöld í hverju landi fyrir sig til þess að styðja við hagsmunasamtök hinsegin fólks. Í Færey