Framkvæmdir við endurbætur á innilauginni í Akureyrarsundlaug hófust haustið 2024. Gamla laugin var komin til ára sinna og er framkvæmdin mikil lyftistöng fyrir sundkennslu á Akureyri. Kostnaður við framkvæmdina hleypur á nokkur hundruð milljónum.Framkvæmdin setti skólasund í grunnskólum á Brekkunni örlítið úr skorðum. Ráðamenn sundlaugarinnar og sundkennarar dóu ekki ráðalausir í þessi tvö ár.Þá eru þeir sem stunda sundleikfimi, ungbarnasund og sjúkraþjálfarar hæstánægðir með að laugin sé að komast í notkun. Fyrst um sinn verður hún einungis opin fyrir skólasund en það styttist í að almenningur komist að.Eftir tæplega tvö ár af framkvæmdum er loksins búið að opna innisundlaugina í Akureyrarlaug, að minnsta kosti fyrir skólasund. Mikil ánægja er með hvernig framkvæmdin heppnaðist.