Góð staða helstu útflutningsgreina, sem birtist meðal annars í hækkandi afurðaverði í sjávarútvegi og „mjög sterku“ ferðamannasumri, samhliða háu vaxtastigi hefur ýtt undir gengishækkun krónunnar og er raungengið núna í hæstu hæðum. Sérfræðingur á gjaldeyrismarkaði segir að á meðan sú staða helst óbreyttu sé fátt sem bendi til þess að gengið muni hreyfast mikið og því áfram útlit fyrir sterka krónu.