Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir nýja vatnslögn til Vestmannaeyja enn ekki hafa verið prófaða. Tjón varð á lögninni í byrjun ágúst og enn óljóst hvort hún sé nothæf. Íris segir skýrt hver beri ábyrgð á tjóninu.Lögninni er ekki ætlað að dreifa vatni í Vestmannaeyjabæ, heldur vera til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina. Vestmannaeyjabær bíður enn eftir lokaskýrslu vegna tjónsins. Íris segir alveg óumdeilt að lögnin hafi skemmst við útlagningu og því skýrt hvar ábyrgðin liggur. > Hún skemmist í útlagningu hjá Subsea 7 þannig að það er ekkert vafamál hvar lögnin skemmist og hvenær. Hún skemmdist ekki um borð í skipinu eins og voru einhverjar fréttir um. Hún skemmist þegar verið er að leggja hann út en við höfum ekki fengið lokaskýrsluna um nákvæmlega hvað ger