Svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík og var lögregla kölluð út að staðnum í morgun. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði svo þurfti að aflífa hana, auk þess sem fjölmörg dýr eru særð og með áverka. Verksummerki eru með svipuðum hætti og síðast þegar brotist var inn hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt í maí síðastliðnum.