Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Sýnar, segir skaðabótamál fjárfesta gegn honum rógburð til að koma honum úr stjórn Íslandsbanka, þar sem hann er formaður. Hann segir fráleitt að hann fengi að sitja í stjórn bankans ef Fjármálaeftirlitið grunaði hann um nokkuð misjafnt.Félagið Gavia Invest, sem keypti hlutabréf Heiðars í Sýn 2022, þegar hann hætti sem forstjóri félagsins, hafa stefnt honum fyrir dóm. Þeir telja hann hafa leynt upplýsingum um stöðu fyrirtækisins við söluna.„Þetta er bara rógsherferð til að reyna að koma mér úr stjórn Íslandsbanka og það er ekkert annað á bakvið þetta,“ segir Heiðar um ásakanirnar í samtali við fréttastofu.Hann segist ekki hafa haldið upplýsingum frá kaupendunum.„Nei, það gerði ég svo sannarlega ekki. Og það er dálítið merkilegt að þeir eru að fjalla