Aftur brotist inn í svínabú Stjörnugríss: Sex skepnur dauðar

Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði, með þeim afleiðingum að það þurfti að aflífa hana, eftir annað innbrot í svínabú Stjörnugríss að Brimnesi á Kjalarnesi í nótt. Fjölmörg dýr séu særð og með áverka.Þetta segir í tilkynningu frá Geir G. Geirssyni forstjóra fyrirtækisins.Í þetta sinn hafi rúða verið brotin og farið inn um hana. Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar samkvæmt tilkynningunni. Afleiðingarnar voru þær að dýrin gengu laus um húsin og sum þeirra komust út á tún við búið.Þá segir Geir að búast megi við frekari afleiðingum innbrotsins á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, minnkaðrar mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegra fósturláta. > Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í l
Aftur brotist inn í svínabú Stjörnugríss: Sex skepnur dauðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd