Hreinsa búðina og reyna að opna hana sem fyrst aftur

Eigendur verslunarinnar Andrár á Laugarvegi í Reykjavík urðu eldsvoðans í nótt varar þegar önnur þeirra fékk skilaboð í síma sinn um að brunaviðvörunarkerfið væri farið í gang. Skömmu síðar hafði Securitas samband og lét vita að kviknað væri í.Steinunn Hrólfsdóttir og Eva Katrín Baldursdóttir flýttu sér að versluninni. Steinunn segir það hafa tekið á að koma á staðinn. „Það var mjög mikið sjokk að koma hingað að fjórum slökkviliðsbílum, sjúkrabílum og fólkinu sem var úti á hótelinu úti á götu.“ Steinunn og Eva Katrín fengu ekkert að gert meðan á slökkvistarfi stóð. Þær fengu að fara inn í búðina þegar klukkan nálgaðist að verða fjögur. Þær fóru strax í að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Annar eigenda Andrár segir það hafa verið mikið áfall að koma að versluninni með slökkvilið, sjúkr
Hreinsa búðina og reyna að opna hana sem fyrst aftur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd