Standa með Þjóðverjum og ætla að auka þrýsting á Rússa

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, lýsa yfir stuðningi við Þjóðverja vegna tilraunar til árásar á flugvöll í Leipzig í byrjun ágúst. Stjórnvöld í Þýskalandi saka Rússa um að hafa flogið dróna með sprengiefni inn á flugvöllinn. Rússar hafna þeim ásökunum.Von der Leyen og Mark Rutte hittust á fundi í Brussel í dag vegna árásartilraunarinnar í Leipzig. Von der Leyen sagði á blaðamannafundi að ef árásin hefði tekist hefðu getað orðið miklar skemmdir og jafnvel mannfall.„Ég segi hreint út hvað þetta var,“ sagði Von der Leyen. Hernaðarlegum búnaði hefði verið beitt og að Rússar hefðu framið árásina á evrópskri grundu. Tilraunin væri hluti sífellt hættulegri árása á flugvelli og aðra mikilvæga innviði Evrópu
Standa með Þjóðverjum og ætla að auka þrýsting á Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd