Grunur er um að bíll sem hafnaði utan vegar við Krýsuvikurveg með þeim afleiðingum að þrjú ungmenni létust, hafi verið ekið á yfir 220 kilómetra hraða. Íbúar á Völlunum hafa lengi varað við hraðakstri á veginum. Mörg ungmenni urðu vitni að slysinu.Rannsókn lögreglunnar á slysinu er á skammt á veg komin. Bíllinn hafnaði utan vegar, lenti á klett sem stendur utan vegar við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Leiðarendavegar og varð við það alelda. Tvær stúlkur, 16 og 18 ára, og 21 árs karlmaður létust í slysinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eldri stúlkan írsk en búsett á Íslandi. Á YFIR 220 KÍLÓMETRA HRAÐA Hraðakstur er meðal þess sem lögreglan skoðar, að sögn Sævars Guðmundssonar aðalvarðstjóra. Grunur er um að bílnum, sem var af gerðinni BMW, hafi verið ekið á yfir 220 kílómetra hraða þeg