Íslenskir og bandarískir viðbragðsaðilar æfðu sig í aðstæðum sem líktust árás á Ísland síðastliðinn sunnudag. Sviðsetningin líkti eftir því þegar flytja þarf og hlúa að tíu manns sem orðið hafa fyrir árás. Um 200 manns tóku þátt í almannavarnaæfingunni.