Óhapp varð á lóð leikskólans Grænuvalla á Húsavík um helgina. Maður sem var þar að leik með börnunum sínum féll í gegnum gólf á kastala.„Ég þekki ekki hversu mikið hann slasaðist en það voru einhver meiðsli sem fylgdu þessu atviki,“ segir Jón Höskuldsson, fræðslufulltrúi Norðurþings. EF TÆKIN ERU EKKI ÖRUGG ER ÞEIM LOKAÐ 150 börn eru í leikskólanum Grænuvöllum. Hann er gamalgróinn og lóðin komin til ára sinna. Þetta er þriðja tækið sem er tekið úr notkun þar á skömmum tíma.„Það er bara komið slit í tækin og það er mat okkar að það sé ekki öruggt að nota þau eins og þau voru. Þá er það bara regla hjá okkur að þá er tækjunum lokað og ef þau teljast ónýt eru þau fjarlægð.“Enginn galli er á tækjunum en það sem gaf sig um helgina er 11 ára gamalt og Jón segir að það hafi verið kominn tími á