Þótt afkomuspáin hjá Festi fyrir þetta ár hafi verið lækkuð vegna þrýstings á framlegð N1 þá telur hlutabréfagreinandi að áhrifin sé að mestu tímabundin, en verðmatsgengi félagsins helst nánast óbreytt. Á móti vegur sterkur rekstur Krónunnar auk þess sem vænt samlegð vegna kaupanna á Lyfju hefur meira en tvöfaldast frá upphaflegum áætlunum.