Bera einkenni hryðjuverka af hálfu stjórnvalda

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að drónaárásir Rússa í Þýskalandi beri öll merki þess að vera hryðjuverk sem framin eru að tilstuðlan stjórnvalda í Moskvu. Kallas greindi frá því í dag að sendiherra Rússa í Brussel, höfuðborg Belgíu þar sem höfuðstöðvar ESB eru, hafi verið kallaður á fund fulltrúa sambandsins. Tilefnið er drónaárásir á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi í síðasta mánuði. Þar fannst dróni hlaðinn sprengiefnum nærri flugvélum. Þjóðverjar staðhæfðu í gær að Rússar stæðu að baki árásinni. Fram að því höfðu þeir aðeins rætt um erlend stórveldi án þess að nefna Rússa.„Við ætlum að ræða árásirnar í Leipzig. Það er ljóst að þær bera öll einkenni hyrðjuverka að tilstuðlan stjórnvalda. Spurningin er hvað við ætlum að gera við því.“
Bera einkenni hryðjuverka af hálfu stjórnvalda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd