Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari.