Hvessir og rignir

Landsmenn geta búið sig undir rigningu, fyrst sunnan og vestan til í dag en um mest allt land á morgun. Lægð nálgast úr suðvestri og henni fylgir bæði vaxandi austanátt og rigning þegar líður á daginn og kvöldið.Veðurspáin er svohljóðandi:Austanátt í dag, allhvass syðst undir kvöld, annars mun hægari. Skýjað, en rigning með köflum sunnan- og vestantil. Bætir í úrkomu syðst í kvöld. Hiti 7 til 14 stig, en 4 til 9 stig austanlands.Austan 5-15 á morgun, hvassast með suðurströndinni. Rigning með köflum, mest sunnantil, en austast um kvöldið. Hiti 7 til 13 stig.
Hvessir og rignir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd