Tveir fluttir á bráðadeild vegna gruns um reykeitrun

Tekist hefur að slökkva eld í kjallara Laugavegs 16, Hótels Skjaldbreiðar, á horni Vegamótastígs. Þar er einnig fataverslunin Andrá og sjónarvottur telur að þar hafi orðið nokkrar skemmdir.Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að einn hafi verið handtekinn í tengslum við brunann og að málið sé í rannsókn.Tveir voru fluttir á bráðadeild til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun. Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að hótelinu um klukkan hálfeitt eftir að tilkynnt var að mikill reykur bærist þaðan.Erfiðlega gekk að finna upptök eldsins sem voru í kjallara hótelsins að sögn Guðmundar Hreinssonar varðstjóra. Hótelið var að stórum hluta rýmt því mikill reykur barst um ganga þess.Guðmundur telur að eigendur hótelsins hafi útvegað gestum dvöl annars staðar. Sl
Tveir fluttir á bráðadeild vegna gruns um reykeitrun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd