Maður handtekinn vegna rannsóknar á bruna og tvær líkamsárásir til rannsóknar

Einn maður er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á bruna í kjallara á Laugavegi 16 sem hýsir Hótel Skjaldbreið og fataverslunina Andrá. Einn maður er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á brunanum á Laugavegi 16.Aðsend / Bjarki MagnússonÞetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tvær líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur eru til rannsóknar hjá lögreglu eftir nóttina. Í dagbókinni segir að hvorug hafi talist meiri háttar. Einnig rannsakar lögregla þjófnað í verslun þar sem ekki tókst að leysa málið á vettvangi. Ölvaður maður var til vandræða á hóteli í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. Hann neitaði að fylgja tilmælum lögreglu og verður því kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Maður handtekinn vegna rannsóknar á bruna og tvær líkamsárásir til rannsóknar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd