Apple breytir nafni Ontario-vatns á kortavef og smáforriti

Tæknirisinn Apple hefur breytt heiti Ontario-vatns í Ameríkuvatn á bandarískum kortavef sínum og smáforriti. Frá undirritun forsetatilskipunarinnar.EPA / Al Drago / POOLFyrirtækið fetar þannig í fótspor Google sem brást hratt við tilskipun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um nafnbreytinguna. Vatnið er á landamærum Kanada og Bandaríkjanna. Fyrir notendur handan landamæranna heitir það áfram Ontario-vatn. Rekja má tilskipun Trumps til tollastríðs Bandaríkjanna og Kanada sem hófst þegar samkomulagsviðræður runnu út í sandinn. Forsetinn breytti nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á síðasta ári.
Apple breytir nafni Ontario-vatns á kortavef og smáforriti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd