Perú slítur stjórnmálasambandi við Íran

Ríkisstjórn Perú hefur tilkynnt slit á stjórnmálabandi við Íran og sakar klerkastjórnina um að kynda undir átökum í Mið-Austurlöndum og að bera ábyrgð á stöðvun skipaumferðar um Hormússund. Utanríkisráðuneyti Perú tilkynnti ákvörðun sína með vísan til sögulegrar afstöðu þarlendra stjórnvalda í þágu friðar. „Perú lítur þær ströngu takmarkanir sem Íransstjórn hefur sett alvarlegum augum, sem og þá truflun sem hún hefur valdið á alþjóðlegum siglingum um Hormússund,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins. NÝR FORSETI BOÐAR HARÐARI ÖRYGGISSTEFNU Keiko Fujimori, nýkjörinn Perúforseti, byggði kosningabaráttuna á harðri öryggisstefnu og hóf skömmu eftir að hún tók við embætti í júlílok undirbúning að þátttöku í varnarverkefninu Skildi Ameríku. Það var sett á laggirnar í mars að undirlagi Donalds Tr
Perú slítur stjórnmálasambandi við Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd