Tveir fluttir á bráðdeild vegna gruns um reykeitrun

Tekist hefur að slökkva eld í kjallara Laugavegs 16, Hótels Skjaldbreiðar. Tveir voru fluttir á bráðadeild til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun. Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að hótelinu um klukkan hálfeitt eftir að tilkynnt var að mikill reykur bærist þaðan. Erfiðlega gekk að finna upptök eldsins sem voru í kjallara hótelsins að sögn Guðmundar Hreinssonar varðstjóra. Hótelið var að stórum hluta rýmt því mikill reykur barst um ganga þess. Guðmundur telur að eigendur hótelsins hafi útvegað gestum dvöl annars staðar. Slökkvistarf tók um tvær klukkustundir og þá hófu slökkviliðsmenn reykræstingu og tryggðu að engar glæður leyndust nokkurs staðar. Lögregla tekur svo við rannsókn á orsökum eldsins.Fréttin var uppfærð eftir að slökkvistarfi lauk og með upplýs
Tveir fluttir á bráðdeild vegna gruns um reykeitrun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd