Niðurstaðna um fýsileika gangagerðar að vænta fyrir árslok

„Kjarnaborhola á Landeyjasandi hefur gefið nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, í samtali við vefmiðilinn Tígul. Völuberg hefur umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng.Kjarnaborun lauk við bæinn Kross á Landeyjarsandi á laugardag. Þannig hefur náðst að safna öllum gögnum sem þarf til að rannsaka heildstætt hve aðlaðandi er að leggja göng milli lands og Eyja.Benedikt segir jarðfræðilegar aðstæður ekki mjög frábrugðnar þeim í Vestmannaeyjum. Þar segir Benedikt vera nokkuð þykka móbergsmyndun, sem sé að mestu uppbyggð af sprungnu basalti og liggi ofan á mun þéttara setbergi.Fyrr í sumar lauk kjarnaborunum við Klifið í Vestmannaeyjum ásamt hafsbotns- og hljóðendurvarpsmælingum milli lan
Niðurstaðna um fýsileika gangagerðar að vænta fyrir árslok

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd