Stjórnarskrárbreyting tekur fyrir allt framboð andstæðinga Ortega

Löggjafarþing Níkaragva hefur að skipun forsetans Daniels Ortega einróma samþykkt stjórnarskrárbreytingu sem takmarkar þátttöku stjórnarandstöðunnar í kosningum.Þingforsetinn Gustavo Porras tilkynnti þetta í gær og hafði áður gefið til kynna að nýtt ákvæði stjórnarskrárinnar hefti framboð stjórnarandstæðinga sem Ortega álítur landráða- og valdaránsmenn á vegum Bandaríkjanna. Kjörtímabil forsetans var jafnframt lengt úr sex árum í sjö.Ortega er áttræður og hefur stjórnað Níkaragva með harðri hendi síðan árið 2006 ásamt vara- eða samforsetanum Rosario Murillo, sem jafnframt er eiginkona hans.Hann var einn leiðtoga Sandinista-hreyfingarinnar sem steypti einræðisherranum Anastasio Somoza af stóli 1979. Ortega réði lögum og lofum í landinu til 1990, þegar hann tapaði í kosningum og steig til hl
Stjórnarskrárbreyting tekur fyrir allt framboð andstæðinga Ortega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd