Kerfisbundinn rasismi ástæða þess að morðið á Tupac var óleyst í 30 ár

„Núna er loksins búið að loka þessu ömurlega máli sem er búið að hanga í limbói í 30 ár,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur um niðurstöðu í morðmáli rapparans Tupac Shakur. Hann var myrtur í Las Vegas árið 1996.Fyrrum meðlimur í gengi í Los Angeles, Duane „Keffe D“ Davis, var fundinn sekur um að hafa myrt rapparann Tupac Shakur fyrir dómi í Las Vegas í gær. Það tók kviðdóminn aðeins nokkrar klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu. Arnar Eggert telur að með þessu fáist ákveðin lokun fyrir fjölskyldu og aðdáendur Tupac í einu þekktasta óleysta morðmáli í Bandaríkjunum. KERFISBUNDIÐ KYNÞÁTTAHATUR HAFI SPILAÐ ÞÁTT Aðspurður hvers vegna svo langan tíma tók að fá niðurstöðu í málinu segir Arnar Eggert að kynþáttahatri sé helst um að kenna.„Ástæðan er fyrst og síðast kerfis
Kerfisbundinn rasismi ástæða þess að morðið á Tupac var óleyst í 30 ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd