Tveir eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárás í iðnaðarhverfi í Hamburg í Þýskalandi í kvöld. Árásarmannsins er enn leitað og er mikill viðbúnaður lögreglu á vettvangi.Skotárásin átti sér stað í Lagerstrasse iðnaðarhverfinu í Hamburg. Í frétt þýska miðilsins Bild segir að árásin hafi átt sér stað í verksmiðju þýska kjötiðnaðarfyrirtæksisins Delta Meat.Tildrög árásarinnar eru ókunn.EPA / HANNIBAL HANSCHKE