Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu varar öll flugfélög og þá sem fljúga innan lofthelgi Rússlands og nota rússneska flugvelli við aukinni umferð úkraínskra dróna í lofthelginni. Hann segir lofthelgi Rússlands „algjörlega óörugga“ meðan á stríðinu stendur.„Úkraína ógnar ekki almennu farþegaflugi sem slíku, ekki einni einustu almennri flugvél. Það verða einfaldlega drónar á flugi yfir Rússlandi og vegna fjölda þeirra verður að taka tillit til þeirra,“ sagði Zelensky.Zelensky segir Úkraínumenn ekki vilja drepa saklausa ríkisborgara og af þeirri ástæðu varar hann við aukinni drónaumferð innan lofthelginnar.„Öruggu dagarnir í lofthelgi Rússlands eru liðnir.“ PÚTÍN SVARAR FULLUM HÁLSI Vladimir Pútín forseti Rússlands svaraði Zelensky fullum hálsi og sagði að með slíkri viðvörun væri hann að l