Unglingur keypti áfengi í netverslun fyrir tæplega 150 þúsund

Dæmi eru um að ólögráða ungmenni geti keypt og sótt áfengi hjá netverslunum án þess að vera spurð um skilríki. Móðir 17 ára drengs segir ólíðandi að aðgengi unglinga að áfengi sé svo auðvelt. UNGLINGAR NÝTI ÓSPART NETVERSLANIR TIL ÁFENGISKAUPA Á menningarnótt hafði lögregla afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna áfengisdrykkju. Í kjölfarið töluðu yfirlögregluþjónn, framkvæmdastjóri Samfés og fleiri um að drykkja unglinga væri að færast í aukana, meðal annars með tilkomu netverslana.Móðir 17 ára drengs segir að sonur hennar og vinir hans nýti netverslanir óspart. Hún vildi ekki koma fram undir nafni.„Þau fengu tvítugan strák til að stofna aðgang inn á Smáríkið.is. Svo eru þau með aðgang að þessum aðgangi og ef þau ætla að versla áfengi nota þau þennan aðgang. Þau greiða samt með sínum k
Unglingur keypti áfengi í netverslun fyrir tæplega 150 þúsund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd